MA málaður
MA málaður

Þessa dagana eru málarar að störfum og skrapa og mála Gamla skóla. Þetta myndarlega fornfræga hús þarfnast reglulega viðhalds. Fyrr í sumar var skipt um nokkra glugga á austurhlið hússins, en gluggaskiptin eiga sér stað smátt og smátt á nokkrum árum. Innanhúss var meðal annars unnið að því að endurnýja eldvarnarkerfi, svo eitthvað sé nefnt. Sumarið er reyndar eini tíminn sem gefst til verulegrar viðhaldsvinnu.

.