Skiltið við Samkomuhúsið
Skiltið við Samkomuhúsið

Fyrir skemmstu setti Akureyrarbær upp þetta skemmtilega söguskilti skammt norðan við Samkomuhúsið á Akureyri. Eins og hér má sjá er á íslensku og ensku sögð í stuttu máli sagan um Glötunarstíginn, sem nemendur fyrrum tróðu þegar þeir fóru í sollinn og lyftu sér upp í Samkomuhúsinu, og sagan um það, þegar nemendur á síðasta ári tóku að láta nýnema ganga upp stíginn í lok busavígslu, og kölluðui hann Menntaveginn. Það er enn gert.