Lið MA í kvöld. Frá vinstri: Sólveig Erla, Árni Stefán og Kjartan Valur. Ljósmynd: Unnar Vilhjálmsso…
Lið MA í kvöld. Frá vinstri: Sólveig Erla, Árni Stefán og Kjartan Valur. Ljósmynd: Unnar Vilhjálmsson.

Menntaskólinn við Hamrahlíð er sigurvegari í spurningakeppni framhaldsskólanna árið 2025 og þar með handhafi hins eftirsótta Hljóðnema. Þetta varð ljóst eftir að MH bar sigurorð af MA í úrslitum Gettu betur í kvöld.

Stemningin í Háskólabíói var góð hjá stórum hópi nemenda og kennara sem fylgdu liðinu suður. Þau Árni, Kjartan og Sólveig byrjuðu af krafti og leiddu eftir fyrstu tvo hluta keppninnar með 15 stigum gegn 14. Að loknum bjölluspurningum hafði MH þriggja stiga forystu, 24-21 og allt í járnum fyrir lokaátökin. Spennan var mikil þegar kom að vísbendingaspurningum. Þar hafði MH betur. Lokatölur 30-21, MH í vil.

Svo sannarlega geta Árni, Kjartan og Sólveig borið höfuðið hátt þrátt fyrir tap í kvöld. Jöfn og góð frammistaða í keppninni í vetur og ekki síður lífleg og skemmtileg framkoma í útvarpi og sjónvarpi allra landsmanna var þeim og MA til sóma. Ritsjórn ma.is óskar Árna, Kjartani og Sólveigu til hamingju með árangurinn og þakkar fyrir góða skemmtun í vetur. Áfram MA.