Mánudaginn 30. nóvember klukkan 10.00 verður í Kvosinni, sal Menntaskólans á Akureyri, minningarathöfn um Róbert F. Sigurðsson sögukennara. Athöfnina annast séra Sólveig Halla Kristjánsdóttir, prestur við Akureyrarkirkju. Skólinn verður lokaður þennan dag að athöfn lokinni.

Útför Róberts fer fram frá Akureyrarkirkju og hefst athöfn þar klukkan 13.30.

.