Muninn haustblað 2012
Muninn haustblað 2012

Muninn, skólablað Menntaskólans á Akureyri kom út í morgun og var dreift í löngufrímínútum. Svo mikill var áhuginn á að skoða blaðið að skúffukökur ritstjórnar gengu treglega út.

Blaðið er að þessu sinni 68 blaðsíður og svarthvítt, ef frá eru taldar auglýsingar á innsíðum kápu. Ritstjóri er Jóna Kristjana Hólmgeirsdóttir en með henni í ritstjórn eru Sóley Úlfarsdóttir, Steinarr Ólafsson, Ída Irene Oddsdóttir, Áki Sebastian Frostason, Hildur Ásta Þórhallsdóttir, Jóhanna Sigurðardóttir og Arsa Rán Björt Zawarty Samper.

Hér er nokkrar myndir frá kyrrðarstundinni í Kvosinni.