Kosningar til embætta í félagslífi skólans voru í dag. Ljóst er hvernig ný stjórn Hugins, skólafélags MA, verður skipuð. Nýr formaður Hugins, inspector scholae, er Óli Dagur Valtýsson. Með honum í stjórn eru sem hér segir: Varaformaður Jón Þór Kristjánsson 3G, ritari Darri Rafn Hólmarsson 3FH, gjaldkeri Þorsteinn Máni Óskarsson 3U, skemmtanastjóri Snorri Eldjárn Hauksson 3XY, formaður fjáröflunarnefndar Valtýr Aron Þorrason 3XY, meðstjórnandi Ingibjörg Bryndís Árnadóttir 3FH og forseti hagsmunaráðs Rakel Rós Snæbjörnsdóttir 3I.

.