Frá inntöku nýnema 2012
Frá inntöku nýnema 2012

Í dag eru nýir nemendur vígðir inn í samfélagið í MA. Fyrstubekkingar eru í litríkum búningum í Kvosinni þar sem þeir sýna listir sínar, meðal annars glæsileg og fjörug dansatriði. Það ríkir gleði og glaumur í Kvosinni. Þar var meðal annars sýnt splunkunýtt myndband og í framhaldinu verða ýmsar uppákomur innan dyra og utan til að stimpla þessa nýju nemendur inn í skólasamfélagið. Þessu lýkur svo með Busaballi í Kvosinni í kvöld.

Talsverður bunki af myndum er á Facebooksíðu skólans.