Nýr vefur Heimavistar
Nýr vefur Heimavistar

Ný heimasíða Heimavistar MA og VMA hefur verið opnuð, heimavist.is. Markmiðið er að heimasíðan verði lifandi, fróðleg og skemmtileg og eru nemendur og foreldrar hvattir til að taka þátt í mótun hennar. Enn er verið að vinna í nokkrum hlutum síðunnar en vonast er til að með samstilltu átaki takist að ljúka gerð hennar á næstunni.  Hægt er að senda ábendingar á netfangið heimavist@heimavist.is.

Heimavistin er heimili um það bil 300 nemenda beggja framhaldsskólanna á Akureyri. Auk þess eru i húsum Heimavistar Mötuneyti MA og þvottahús, en fjölmargir nemendur skólanna sem búa annars staðar en á vist nýta sér þá þjónustu.