Ritstjórnin og nýja blaðið
Ritstjórnin og nýja blaðið

Skólastarf hófst í morgun að loknu jólaleyfi og í löngu frímínútum var dreift jólablaði Munins, sem komst ekki norður í tæka tíð vegna veðurs og ófærðar. Í Kvosinni var því eins og venjulega mikið lesið og skoðað, en nýja blaðið er afar myndríkt og að hálfu svart-hvítt og að hálfu í lit.

Myndir úr Kvosinni í morgun eru á Facebooksíðu MA.