Oddur Gretarsson íþróttamaður MA
Oddur Gretarsson íþróttamaður MA

Oddur Grétarsson handboltamaður hefur verið kjörinn íþróttamaður skólans þetta árið, en kosið var um þennan titil samtímis og kjör fór fram til stjórnar Hugins og annarra embætta í gær. Kosið var á milli fimm afreksmanna í íþróttum sem flestar tilnefningar hlutu í almennri kosningu allra nemenda.

Í þriðja sæti varð frjálsíþróttagarpurinn Bjarki Gíslason en sundkonan Bryndís Rún Hansen varrð í öðru sæti. Aðalbjörn Hannesson fráfarandi formaður ÍMA tilkynnti valið og afhenti viðurkenningarskjöl og Oddi bikarinn sem fylgir titlinum Íþróttamaður MA.

.