Brot á bílastæðareglum
Brot á bílastæðareglum

Í dag er fyrsti dagurinn sem bílastæði MA eru undir eftirliti starfsmanna bílastæðasjóðs Akureyrar. Mjög mikið er um að bílum sé lagt ólöglega við skólann og heimavistina. Það er ekki einungis að af því stafi óþægindi heldur beinlínis lífshætta og auk þess skemmdir á lóð og mannvirkjum.

Um hádegisbilið í dag voru þessar myndir teknar. Við innganginn að Lystigarðinum og bakdyrainnkeyrslu Möðruvalla og Gamla skóla var tveimur bílum lagt á grasi gróin svæði og tveir lokuðu algerlega innkeyrslunni, enda þótt þar sé bannmerki og ábending um að þar þurfi að vera opið fyrir sjúkra- og slökkvibíla. Brot af þessu tagi varða frá og með deginum í dag fésektum.

.