Opið hús verður í MA fimmtudaginn 2. maí klukkan 16.30-18.00. Öllum nemendum 10. bekkjar og forráðamönnum þeirra er boðið að koma og kynna sér skólastarfið.

Auk þess sem námið verður kynnt verður gerð grein fyrir fjölbreyttu félagslífi skólans og fulltrúar margra félaga munu segja frá starfseminni og sýna eitt og annað forvitnilegt í leik og söng, dansi og alls konar uppákomum. Þá verður boðið upp á léttar veitingar í stíl við veðrið :)