Mánudaginn 9.mars heldur Anna Harðardóttir örnámskeið um góðar vinnuvenjur í námi, með áherslu á lestur, glósugerð og minnistækni.

Námskeiðið er 40 mínútur og geta nemendur valið á milli tveggja tímasetninga, kl. 11.30 og klukkan 12.20 í stofu H8.​

Nemendur eru hvattir til að mæta og grípa með sér nesti.