Öskudagur 2013
Öskudagur 2013

Ekki tókst okkar mönnum að komast áfram í Gettu betur á föstudag. Þeir áttust þá við lið MR og þegar kom að bjölluspurningum skildu liðin 3 stig. Okkar menn urðu ofbráðir að hringja bjöllu og freistuðu þess að svara áður en lestri langra ræðna lauk og sátu eftir meðan MR komst á skrið og lauk keppni með sigri sunnanmanna.

Í dag hefur ýmislegt verið sér til gamans gert í tilefni öskudags. Nokkrir komu skemmtilega klæddir og málaðir og mætti vera meira af því. Sleginn var heilmikill poki, sem í reyndist sælgæti að vanda, og keppt var í limbói. Myndin var tekin meðan kraftakarlar og -kerlingar reyndu að ná karamellum úr pokanum.