Póstkort er ef til vill ekki rétta orðið yfir verkefni sem nemendur í náttúrulæsi skila að lokinni ferð í Mývatnssveit. Í gegnum tíðina hafa þessi verkefni þróast og hugmyndaríki nemenda eru fá takmörk sett þegar sköpunargáfan tekur á sprett.

Nú hefur verið farið yfir verkefni síðustu Mývatnssveitarferðar og afraksturinn er að miklu leyti sýndur á ganginum framan við stofu 2 á Hólum. Þar er margt að sjá, og sjón sögu ríkari. Meðal annars þetta:

MYV