Laust fyrir kl. sjö í gærkvöldi fór rafmagn af skólanum með þeim afleiðingum að ljósleiðarasamband skólans við FS-netið datt út. Við það tapaðist samband við vefpóst og ýmsar aðrar þjónustur í skólanum. Þessu sambandi hefur nú verið komið á aftur. Skýringar á rafmagnsleysinu má sjá á vef Norðurorku.