- Skólinn
- Skólinn og starfið
- Fólk og félög
- Sýn, stefnur og mat
- Hús skólans
- Námið
- Þjónusta
Frá síðustu mánaðamótum hefur tölvupóstur á MA-netföng borist á nýjan stað, eða inn í nýtt pósthús MA í Office 365 hjá Microsoft. Upplýsingar um þetta voru sendar nemendum fyrir mánaðamótin og liggja þær inni í gamla pósthólfinu, á postur.ma.is. Nemendur, sem voru í MA í fyrra, geta skráð sig inn með sama lykilorðinu og þá gilti til þess að finna bréf frá Guðjóni með viðhenginu "Leiðbeiningar til nemenda - Nýr póstur".
Í þessu bréfi kemur fyrir setningin "Notandanafnið þitt er xxyyy@ma.is og lykilorð ********." Lykilorðið er samsett úr orði, punkti og númeri. T.d. gæti það litið út svona Menntun.1007 og athugið að enginn punktur er í lokin. Í leiðbeiningunum vantar þær upplýsingar að Chrome vafrinn frá Google vill ekki leyfa innskráningu eins og hún fer fram á vef okkar hjá Office 365.
Tölvudeild vonast til þess að leysa megi þetta Chrome-mál því mjög margir notendur hafa vanist á að nota þann vafra frekar en aðra. En fram að því borgar sig að nota Firefox, Internet Explorer eða Safari.