Nú styttist í prófin og um að gera að fara að huga að undirbúningi og skipulagi. Mánudaginn næstkomandi, þann 18.maí, verður örnámskeið um próf og prófundirbúning kl. 10:00 – 10:40 á Suðursal í Gamla skóla. Ekki þarf að skrá sig fyrirfram heldur bara mæta á svæðið og er námskeiðið nemendum að kostnaðarlausu.