Nú eru vorannarprófin hálfnuð. Fyrsti bekkur tekur síðasta próf fimmtudaginn 5. júní en annars lýkur reglulegum prófum föstudaginn 6. júní. Þeir sem þurfa að þreyta sjúkrapróf gera það á mánudag og þriðjudag, 9. og 10. júní. Endurtökupróf verða eftir þörfum dagana 11. og 12. júní. Skrá yfir sjúkrapróf og endurtökupróf verður birt eins og próftaflan undir tengli á forsíðu Vefs MA.

.