Síðustu regluleg vorannarpróf voru í gær, föstudag. Þá voru jafnframt birtar fyrstu einkunnir. Nemendur nálgast einkunnir sínar á Innu og hafa þar einkaaðgang, hver að sínum upplýsingum.

Sjúkrapróf og endurpróf verða eftir helgina og töflur yfir þau próf má sjá með því að smella á tengla á forsíðu ma.is.

Unnið er að brautskráningu nemenda sem verður með heðbundnu sniði í Íþróttahöllinni og hefst klukkan 10 að morgni þriðjudagsins 17. júní. Nánari upplýsingar um það verða birtar á forsíðu ma.is.

.