Við saumavélarnar í G12
Nemendur í fatagerð koma að loknum skóladegi tvisvar í viku, sníða, breyta og sauma á sig flíkur undir styrkri handleiðslu Helgu Árnadóttur. Þetta er valgrein í FAG173 og hér sést hvar þrjár yngismeyjar sitja við saumavélarnar í stofu G12.