MA:Kvennó í Gettu betur
MA:Kvennó í Gettu betur

Drengirnir í liði MA í Gettu betur kepptu í Sjónvarpinu í gærkvöld og máttu lúta í lægra haldi fyrir grimmsterku liði Kvennaskólans. Þótt undirbúningur væri góður og viljinn heitur reyndist við ramman reip að draga. Lið Kvennaskólans er afar sterkt og sigurstranglegt í keppninni í ár. Hópur stuðningsmanna frá MA fór suður í gær og sneri heim á leið að keppninni lokinni.

Ýmsum gömlum MA-nemanda var hlýtt um hjartarætur þótt sigurinn lenti hjá andstæðingunum, en auk drengjanna þriggja í liðinu voru á sviðinu tveir gamlir nemendur skólans, Edda Hermannsdóttir spyrill og Þórhildur Ólafsdóttir annar dómara.

Myndin er tekin af vef Sjónvarpins.