Síðustu regluleg vorannarpróf í MA eru á föstudaginn kemur, en fyrsti bekkur lýkur prófum í dag, miðvikudag. Sjúkrapróf verða mánudaginn 6. júní. Tafla yfir sjúkrapróf verður birt mjög fljótlega og tengill á hana verður í hliðardálki á forsíðu ma.is.

Fyrstu einkunnir birtast á INNU á föstudag og síðan jafnóðum og þær verða skráðar.

Endurtökupróf verða að mestu frá miðvikudegi til föstudags, 8. - 10. júní. Búast má við að próftafla fyrir þau verði tilbúin á sunnudag, einnig í hliðardálkinum.

Prófsýningar verða mánudaginn 6. júní klukkan 15.00-16.30. Skrá yfir prófsýningar verður birt hér á vefnum á sunnudag.