Sjúkrapróf verða haldin í 1. bekk föstudaginn 7. júní en mánudaginn 10. júní í efri bekkjum. Tafla yfir tímasetningar eru á vef MA, undir hlekknum Próftafla.

Prófsýningar

Prófsýningar verða í 1. bekk á föstudaginn kl. 14 en í efri bekkjum mánudaginn 10. júní kl. 15 (nema annað sé auglýst).

Endurtökupróf

Endurtökupróf hefjast 11. júní. Upplýsingar um próf og tímasetningar verða settar inn á vef MA. Greiða þarf 8000 kr fyrir endurtökupróf með því að leggja inn á reikning 0302-26-827, 460269-5129. Athugið að nemendur skrást ekki sjálfkrafa í endurtökupróf. Heimilt er að taka að hámarki þrjú próf en þeir sem eru með fleiri föll þurfa að setja sig strax í samband við námsráðgjafa.