- Skólinn
- Skólinn og starfið
- Fólk og félög
- Sýn, stefnur og mat
- Hús skólans
- Námið
- Þjónusta
Hljómsveitin Skandall sigraði Söngkeppni framhaldsskólanna með einstaklega litríkum og líflegum flutningi í Háskólabíói nú í kvöld. Skandall flutti lagið Plug In Baby með bresku hljómsveitinni Muse en nú með íslenskum texta, enda er það regla að öll lög skuli flutt á íslensku í lokakeppninni. Flutningur stúlknanna skar sig úr þar sem um var að ræða eina atriðið þar sem var heil hljómsveit keppenda á sviðinu. Í öðru sæti var Tækniskólinn og í því þriðja Menntaskólinn í tónlist. Dómnefndina skipuðu þau Diljá Pétursdóttir, tónlistarkona, Pálmi Gunnarsson, tónlistarmaður, og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir, leikkona og tónlistarkona.
Hljómsveitin Skandall var stofnuð í MA í október 2022 fyrir hljómsveitarkeppnina Viðarstauk og hefur sveitin spilað á ýmsum viðburðum síðan. Hljómsveitina skipa þær Helga Björg Kjartansdóttir, bassi, Inga Rós Suska Hauksdóttir, söngur, Kolfinna Ósk Andradóttir, hljómborð og fiðla, Margrét Sigurðardóttir, gítar, Sóley Sif Jónsdóttir, trommari, hljómborðsleikari og söngkona, og Sólveig Erla Baldvinsdóttir, flautuleikari.
Gaman er að segja frá því að allar koma þær frá mismunandi stöðum en Helga er frá Akureyri, Inga er frá Blönduósi, Kolfinna frá Ólafsfirði, Margrét frá Siglufirði, Sóley frá Skagaströnd og Sólveig frá Tjörn á Skaga. Það má því segja að Menntaskólinn sé það heimili sem sameini hljómsveitina.
Síðast sigraði MA Söngkeppni framhaldsskólanna árið 2018 þegar Birkir Blær Óðinsson kom sá og sigraði með lagi Screamin' Jay Hawkins, I put a spell on you.
Innilega til hamingju Skandall! Framtíðin er björt!