Nemendur geta leigt sér læsta skápa fyrir gögn sín í fatahenginu á Hólum og í kjallara Möðruvalla. Skápar verða leigðir frá og með 12. september. Leiga fyrir skáp er 5000 krónur fyrir skólaárið. Lyklum skal skila að vori og fást þá 4000 krónur endurgreiddar.

Nokkrir nemendur hafa ekki enn skilað lyklum frá síðasta skólaári. Þeir eru vinsamlega beðnir að skila þeim í afgreiðslu skólans og geta þá fengið umrædda endurgreiðslu.