Bækur (mynd af vef)
Bækur (mynd af vef)

Skiptibókamarkaður Hagsmunaráðs fellur niður á þessu hausti. Skólafélagið Huginn hefur samið við skiptibókamarkaðinn hjá Eymundsson vegna bókamiðlunar að þessu sinni.

Samkvæmt tilkynningu frá formanni Hugins er það meðal annars vegna nýrrar námskrár og breytinga á kennsluefni að félagið hefur ekki fengið mikið af seljanlegum bókum til miðlunar og því er brugðið á þetta ráð.