Dúxinn 2012 heiðraður - Agnes Eva Þórarinsdóttir
Dúxinn 2012 heiðraður - Agnes Eva Þórarinsdóttir

Menntaskólanum á Akureyri verður slitið í Íþróttahöllinni á Akureyri mánudaginn 17. júní klukkan 10. Húsið er opið frá klukkan 9. Að vanda hefst athöfnin með tónlistarflutningi, en að honum loknum er ræða skólameistara. Fulltrúar afmælisárganga ávarpa samkomuna, en það eru 10, 25, 40, 50 og 60 ára stúdentar. Síðan hefst brautskráning nýstúdenta og að loknum kveðjuávörpum og skólaslitum verður myndataka í lundinum norðan við Hóla.

Opið hús er í MA að loknum skólaslitum klukkan 12-15. Þar eru í kennslustofum sýnd dæmi um verkefni nemenda auk kennslugagna í efnafræði og boðið upp á veitingar. Gestum er boðið að ganga um skólahúsin og njóta verunnar þar.

Hátíðarfagnaður nýstúdenta er í Íþróttahöllinni að kvöldi 17. júní. Hátíðin er sett klukkan 19.30 en húsið opnað klukkan 18.30. Þar munu nýstúdentar gleðjast í veislufagnaði ásamt fjölskyldum sínum, vinum og starfsfólki skólans. Nemendur munu undir borðum halda uppi skemmtun með fjölbreyttum atriðum. Upp úr klukkan 23 fara nýstúdentar samkvæmt hefð í miðbæinn og dansa á Torginu, en halda að því loknu í Höllina á ný, þar sem dansað verður undir leik hljómsveitarinnar Í svörtum fötum.

Að venju hefst gleði vegna skólaslita MA fyrr, en hingað í bæinn koma hundruð manna, MA-stúdentar sem halda upp á að hálfur eða heill áratugur sé liðinn frá brautskráningu. Langflestir árgangarnir hittast að kvöldi 14. júní, fara í alls kyns ferðalög 15. júní og enda sína gleði á MA-hátíðinni í Höllinni að kvöldi 16. júní.

Til að styrkja enn frekar tengslin milli skólans og gamalla MA-inga hefur verið ákveðið að gefa út tímarit þar sem fjallað er um skólastarfið í dag en einnig brugðið upp fortíðarmyndum. Tímaritið ber nafnið Jubilantinn og mun vonandi koma út árlega í kringum 17. júní. Þetta fyrsta tölublað er einungis á rafrænu formi en að ári er stefnt að því að blaðið verði fast í hendi. - Vefritið Jubilantinn.

Menntaskólinn á Akureyri óskar nýstúdentum, aðstandendum þeirra, 
afmælisstúdentum og velunnurum öllum gleðilegrar hátíðar.