Veður er að mestu gengið niður á Akureyri, en víða illfært akandi í morgunsárið, og verið að ryðja helstu leiðir. Skólastarf verður í MA í dag, föstudag, eftir því sem fólk kemst til skóla.

Skólameistari vill ítreka það sem hann tilkynnti í gærkvöld, að nemendur utan bæjar eða fjarri skóla og forráðamenn þeirra hafi samráð um það hvort ráð sé eða möguleikar að komast í skóla.

Nánari tilkynningar og nauðsynlegar upplýsingar verða birtar hér á vefnum eða sendar í tölvupósti til nemenda.

.