Nú eru próf í fullum gangi í MA og miklar annir hjá öllu skólafólki. Íþróttakennarar bjóða nemendum, kennurum og öðru starfsfólki upp á slökunar-jóga alla virka daga í íþróttahúsinu klukkan 11.00-11.30. Þetta er kjörið tækifæri til að slaka á líkama og sál fyrir eða eftir próf. Gott að hafa með sér teppi og slaka á við kertaljósin.