Tæplega er hægt að tala um sólbjartan voryl þetta árið en í dag skein sól og það var allt að því þokkalega hlýtt í geislum hennar og Huginsstjórn grillaði borgara. Það sá á að langt var orðið síðan síðast var matreitt ofan í skólafélagana því vistir þraut fyrr en til var ætlast. En þessi hádegisstund í birtu norðursins gaf lífinu lit.

Nokkrar myndir eru komnar í mynadalbúm á ma.is - Skólatorg. Stutt leið hér.