- Skólinn
- Skólinn og starfið
- Fólk og félög
- Sýn, stefnur og mat
- Hús skólans
- Námið
- Þjónusta
Sjö framhaldsskólar á Norður- og Austurlandi, sem sögðu sig frá hinni hefðbundnu Söngkeppni framhaldsskólanna, halda eigin keppni í Hofi á laugardag. Mikill styrr stóð um keppnina að þessu sinni vegna nýrra reglna um að allir framhaldsskólar sem hygðust vera með greiddu þátttökugjald, en einungis yrðu valdir 12 skólar til þátttöku í sjónvarpi. Af því leiddi að þessir sjö skólar sögðu sig frá keppninni, og halda nú sérstaka söngkeppni framhaldsskólanna á Norður- og Austurlandi, sem fyrr segir.
Skólarnir sem um ræðir eru Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra, Menntaskólinn á Tröllaskaga, Menntaskólarnir tveir á Akureyri, MA og VMA, Framhaldsskólinn á Laugum og Framhaldsskólinn á Húsavík auk Verkmenntaskóla Austurlands.