Söngkeppni MA 2011
Söngkeppni MA 2011

Söngkeppni MA verður haldin í Kvosinni á fimmtudagskvöld og hefst klukkan 19.30. Sigurvegarar í söngkeppni MA verða fullrúar skólans í Söngkeppni framhaldsskólanna í Íþróttahöllinni á Akureyri 9. apríl næstkomandi.

Söngkeppnin í MA er einn fjölsóttasti atburður í félagslífinu og mikið í hann lagt. Hljómsveit hússins leikur undir hjá flestum flytjendum, stórt svið er að spretta upp í Kvosinni og þar eru komin kynstur af tækjum og tólum til að tryggja að keppnin verði sem glæsilegust og ljósum prýdd.

Nánari upplýsingar á vef nemenda, muninn.is

.