Sprengt á Stórutjörnum
Sprengt á Stórutjörnum

Efnafræðitilraunahópurinn sem sló í gegn hér á heimaslóðum á vordögum fór í gær í leiðangur austur í Stórutjarnaskóla og sýndi listir sínar. Góður rómur var gerður að sýningunni, eins og sjá má á vef Stórutjarnaskóla en þar er gerð grein fyrir heimsókninni og birtar margar myndir af sýningunni.