Fyrsti STÆ-stoðtími vetrarins
Fyrsti STÆ-stoðtími vetrarins

Eins og undanfarin ár bjóða nemendur á lokaári í stærðfræði yngri nemendum aðstoð í stærðfræði. Mikil aðsókn hefur verið í þessa reiknitíma og þegar nemendur 4TX byrjuðu með stoðtíma sína í gær í stofu 5 á Hólum komu þangað nemendur úr fyrsta, öðrum og þriðja bekk til að leita aðstoðar við að leysa dæmi sín og fá skýringar af öllu tagi.

Stoðtímar í stæðrðfræði eru auglýstir á skólaskjánum.