Stoðtímar í stærðfræði á vegum nemenda í 4. bekk eru hafnir og verða á þriðjudögum í stofu H4 á Hólum og nálægum stofum ef þurfa þykir.

Það er félagið Σ (Sigma) sem stendur fyrir þessum tímum, en þeir hefjast klukkan 16.30 á þriðjudögum, eins og fyrr segir.

Allir eru velkomnir í þessa tíma sem vilja njóta tilsagnar reynsluboltanna í Σ.