Stöðupróf í erlendum tungumálum verða haldin í desember. Prófin eru hugsuð fyrir þá nemendur sem hafa aflað sér þekkingar utan hins hefðbundna skólakerfis. MA-ingar sem vilja taka þessi próf geta fengið að taka þau í MA og skrá sig þá hjá aðstoðarskólameistara. Athugið að próf sem tekin eru hér kosta 4500 kr. Upplýsingar um prófdaga má finna á töflum skólans og á vef MH.

.