Stöðupróf í erlendum tungumálum verða haldin á vegum MH 13. - 15. ágúst, sbr. www.mh.is. Prófin eru hugsuð fyrir þá sem búa yfir þekkingu og reynslu sem ekki hefur verið aflað með hefðbundnum hætti í skóla hér á landi, t.d. þá sem verið hafa skiptinemar. Nemendur MA geta fengið að taka prófin í MA ef þeir óska þess, og eru þá beðnir að tilkynna það með góðum fyrirvara í tölvupósti, netfang ma@ma.is.

.