Í tilkynningu frá Strætisvögnum Akureyrar kemur fram að til þess að bæta þjónustu við nemendur í MA og VMA hafi verið bætt inn nýjum skólavagni.

Þessi sérstaki skólavagn byrjar akstur frá Merkigili klukkan 07.53 á morgnana. Strætó vonast til að þessari breytingu verði vel tekið og hvetur nemendur til að nota sem allramest þennan nýja skólavagn til að létta álagið á Leið 1, sem hefur verið mjög mikið.