Menntaskólinn á Akureyri auglýsir eftir stundakennara í spænsku á vorönn. Umsækjendur þurfa að hafa háskólamenntun í spænsku og kennsluréttindi. Ráðið verður í stöðuna frá 1. febrúar 2016. Leitað er að umsækjanda sem er fær í samskiptum, á gott með að vinna með nemendum og er tilbúinn til að taka þátt í þróun kennslu og náms. Laun greiðast samkvæmt gildandi kjarasamningi Kennarasambands Íslands og fjármálaráðherra og stofnanasamningi skólans.

Skriflegar umsóknir, ásamt prófskírteinum og upplýsingum um nám og fyrri störf skulu berast Menntaskólanum á Akureyri í síðasta lagi 29. desember 2015. Ekki er um sérstök umsóknareyðublöð að ræða. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Ef þú vilt  takast á við krefjandi kennarastarf í metnaðarfullum skóla er tækifærið hér.  Frekari upplýsingar veita Jón Már Héðinsson skólameistari og Sigurlaug Anna Gunnarsdóttir aðstoðarskólameistari, sími: 4551555,  netfang ma@ma.is

Menntaskólanum á Akureyri,

Jón Már Héðinsson
skólameistari