Sunna vann söngkepnina
Sunna vann söngkepnina

Sunna Friðjónsdótttir vann Söngkeppni MA á fimmtudaginn þegar hún söng Proud Mary, sem margir hafa flutt, m.a. Tina Turner. Sunna verður fulltrúi MA í Söngkeppni framhaldsskólanna í Íþróttahöllinni 9. apríl.  Lagið Proud Mary er eftir John Fogerty, en hann samdi það og flutti fyrst með hljómsveit sinni, Creedence Clearwater Revival. Síðar hafa ótal tónlistarmenn um allan heim spreytt sig á laginu.

Sjá má nánar frásögn af keppninni á vef nemenda og auk þess eru fréttir og myndir Stefáns Erlingssonar í Landpóstinum (http://landpostur.is/news/urslit_songkeppni_ma_2011/).

.