Steinar Eyþór Valsson hefur hotið verðlaun í samkeppni um slagorð, sem haldin var á vegum Umferðarráðs og Facebooksíðu þess, Vertu til!

Keppnin fór fram meðal framhaldsskólanema og var skipt í fjóra riðla. Steinar Eyþór vann sinn riðil og hlýtur að launum iPad. Hann er auk þess í þriðja sæti í heildarkeppninni og mun taka á móti viðurkenningu fyrir það í athöfn á Bessastöðum á sunnudag.

Slagorð Steinars er Sýnum umhyggju í umferðinni og útfærsla þess sést hér á myndinni.