Lið MA með þau Rakel, Magnús og Þorstein í broddi fylkingar varð að lúta í lægra haldi fyrir liði Tæ…
Lið MA með þau Rakel, Magnús og Þorstein í broddi fylkingar varð að lúta í lægra haldi fyrir liði Tækniskólans. Mynd: RÚV.

Fyrri keppnisdegi í 16-liða úrslitum Gettu betur lauk í kvöld með viðureign MA og Tækniskólans. Lokatölur urðu 26 - 17, Tækniskólanum í vil. Þar með er ljóst að þátttöku MA í spurningakeppni framhaldsskólanna er lokið þetta árið. Þau Magnús Máni, Rakel Alda og Þorsteinn Jakob geta þó borið höfuðið hátt sem og allt aðstoðarfólk þeirra. Frammistaða allra sem að keppninni komu fyrir hönd skólans var til fyrirmyndar.

Auk Tækniskólans tryggðu Verzló, Flensborg og FG sér þátttökurétt í 8-liða úrslitunum í kvöld. Seinni viðureignir 16-liða úrslitanna fara fram á miðvikudagskvöld en 8-liða úrslitin hefjast í febrúarbyrjun. Sýnt verður frá þeim í sjónvarpinu.