Útileguferð útivistarhóps 3. bekkjar í Baugasel
Útileguferð útivistarhóps 3. bekkjar í Baugasel

Útivistarhópurinn í 3. bekk fór síðdegis í dag áleiðis í Baugasel ásamt Ingibjörgu Magnúsdóttur íþróttakennara. Að sögn hennar var ætlað að ganga frá Bug um Barkárdal að Baugaseli, gista þar í nótt og koma til baka á morgun, sumardaginn fyrsta.

Ferðin gekk afar vel, veðrið var misgott, en þetta var hin skemmtilegasta útilega að sögn Ingibjargar.

.