Kynningarbréf til nýnema frá tölvudeild MA
Kynningarbréf til nýnema frá tölvudeild MA

Rétt í þessu sendi tölvudeild MA hverjum og einum nýnema mikilvægar upplýsingar um skólanetfang, MA-lykilorð og aðgangskóða að þráðlausa netinu MA-Nemendur í tölvupósti. Þessar upplýsingar voru sendar á einkanetfang nýnema, forráðamanns 1 og forráðamanns 2 eins og þau netföng eru skráð í Innunni.

Þar sem um fjöldapóst er að ræða (nærri 700 netföng) með nokkrum tenglum eru allmiklar líkur á því að skeytið rati í ruslpóstinn ykkar. Athugið endilega hvort þetta hafi nokkuð lent þar!

Svona lítur bréfið út (án persónuupplýsinganna ;) https://doc.co/AjvJrt

Ef þið kannist ekki við að hafa fengið svona bréf, skoðið þá endilega skráninguna ykkar í Innu. Hvaða netföng eru gefin upp þar?

Ef ekkert finnst má endilega senda tölvupóst á Guðjón H. Hauksson, gudjon@ma.is.