Félag þýskukennara á Íslandi efnir til samkeppni meðal framhaldsskólanema um dvöl í Þýskalandi. Í verðlaun eru þriggja til fjögurra vikna dvöl í Þýskalandi sumarið 2009 með mikilli dagskrá. Einnig verða veitt bókaverðlaun.

Nemendur MA hafa oft á undanförnum árum farið til þýskalands vegna góðrar frammistöðu í þýskuþrautinni og hlotið fjölda annarra viðurkenninga. Nánaru upplýsingar um þrautina eru á vef nemenda, muninn.is.

Í MA fer þýskuþrautin fram miðvikudaginn 4. mars kl. 10:45 ? 12:15  í stofu G11.

.