Freyja Steindórsdóttir og Ragnheiður Pétursdóttir
Freyja Steindórsdóttir og Ragnheiður Pétursdóttir

Hin árlega Þýskuþraut Félags þýzkukennara á Íslandi var haldin 10. mars s.l. Þátttakendur voru rúmlega 50 og  úr flestum framahaldsskólum landsins.

Frá okkur tóku þrjár stúlkur þátt og er skemmst frá því að segja að tvær þeirra náðu frábærum árangri og voru í hópi 20 bestu. Þær eru Freyja Steindórsdóttir 3A sem varð í 9. sæti og Ragnheiður Pétursdóttir 2. V varð í 12. sæti.

Að launum fengu þær bækur frá sendiráði Þýskalands á Íslandi, ásamt viðurkenningarskjölum.

Skólinn óskar þeim innilega til hamingju.