Stefán Þór, Arnar Már, Anna Eyfjörð og Bjarni
Stefán Þór, Arnar Már, Anna Eyfjörð og Bjarni

Það er ekki í frásögur færandi þótt kennarar og starfsmenn MA geri sér glaðan dag. Í hverjum mánuði er haldinn einn sameiginlegur afmælisdagur á kennarastofunni. Þá bera á borð kræsingar fjölbreytilegar þeir sem eiga afmæli eða fagna tímamótum í þeim mánuði að viðbættum einhverjum sem slíkt gera utan skólaársins þann mánuðinn.

Á þriðjudaginn nýliðinn var óvenjuheilagt því þar ægði saman stórafmælum. Þá voru tertur og kruðerí meðal annars í tilefni þess að Arnar Már Arngrímsson er í september fertugur og þeir Bjarni Guðmundsson og Stefán Þór Sæmundsson fimmtugir og við bættist að Anna Eyfjörð gekk nýverið í hjónaband. Þessa mynd tók Guðjón við allsnægtaborðið.