Í kvöld klukkan 20 verða tónleikar í Kvosinni til styrktar fæðingardeild FSA. Margir tónlistarmenn úr röðum nemenda koma fram á tónleikunum.

Nokkrar stúlkur í 1. bekk standa að þessum tónleikum, en þeir eru afrakstur verkefnis í menningarlæsisáfanganum sem fól það í sér að láta gott af sér leiða. Tónleikarnir hefjast sem fyrr segir klukkan 20 og aðgangseyrir er 500 krónur.