Um 150 nemendur eru nú á leiðinni til Reykjavíkur til að vera í Háskólabíói í kvöld þegar lið MA mætir liði Borgarholtsskóla í Gettu betur. Það ræðst í keppninni í kvöld hvort liðið mætir liði MH í úrslitum.

Hér á myndinni eru nemendur að búa sig undir og borga fargjaldið í þessa suðurferð, því allt kostar þetta peninga.